Ég er semsagt orðinn verkfræðingur og byrjaður að vinna
hér. Ég er í deild sem að reiknar út alskonar skemmtilega hluti í orkuverum, aðallega í sambandi við bruna á lífrænu eldsneyti og framleiðslu á gufu.
Ég er kominn vel af stað og líkar vel við þennan vinnustað. Allir voða vinsamlegir og hjálplegir. Það eru auðvitað langflestir Danir sem að vinna hérna en svo er líka Frakki og Þjóðverji sem að eru í minni deild. Við erum sjö í reikningsdeildinni og það eru um það bil 70 sem að vinna hjá fyrirtækinu.
Nú verð ég að halda áfram að vinnna.