Við vorum á ferðinni þegar allt í einu heyrist í syninum:
"Mamma það kostar bara 220 krónur að fljúga til London það er
minna en kostar til Kaupmannahafnar og samt er það í öðru
landi!" Jú mikið rétt hér auglýsir Sterling á strætó, þess
ber að geta að hægt er að fljúga til Álaborgar frá Köben
fyrir 260 kr danskar, svo nú er bara að skella sér í heimsókn

Hann
tilkynnti okkur það annars í gær að hann þyrfti sko ekki að mæta á
réttum tíma í skólann í morgunn. Ha hvað meinarðu segjum við, jú
hann hafði sko samið við kennarann um að meiga mæta of seint þar
sem hann gæti verið þreyttur vegna afmælishátíðarhalda, hehehe.
Þess ber nú þó að geta að prinsinn var sendur af stað á réttum tíma
í skólann, enda ekki afmælishátíðarhöld fram eftir svona í miðjum
próflestri.
Prinsessan er byrjuð á vöggustofu. Hún er bara mjög sátt,
finnst þetta allt svo spennandi. Mér finnst annars ótrúlegt hvað
tíminn hefur liðið hratt, daman er bara að verða 1 árs. Ég verð nú
samt alveg að viðurkenna að þetta er sennilega erfiðara fyrir mig
heldur en hana. Það er líka alveg ótrúlega skrýtið að vera ein
heima eftir allan þennan tíma, en jæja það eru ekki margir dagar
þar til skólinn byrjar.