Í
dag vildi ég svo gjarnan vera á Íslandi, það er ekkert gaman
að vera í Danmörku á sumardaginn fyrsta. Það eru svo
ótalmargar minningar sem fylgja þessum degi, hvort sem það
var á Selfossi að berjast við Kára um hver hefði betur í
baráttunni um fánana. Ja eða bara að njóta veðurblíðunnar.
Eftir að ég flutti til Reykjavíkur var fastur liður að fara í
skátamessu í Hallgrímskirkju, ja og auðvitað í skátakaffi á
eftir. Verð bara með ykkur öllum í huganum á þessum
hátiðisdegi. Dagurinn er nú kannski á undanhaldi líka, ja
svona ef hann verður bara fluttur, þar sem fimmtudagsfrí
þykja ekki svo praktísk.
Jæja að
lífinu hér hjá okkur. Þá eru allir gestirnir komnir til síns heima
og allt að komast í eðlilegt horf hérna. Þetta fór allt saman fram
úr björtustu vonum, það er sko greinilega ekkert mál að hafa allt
fólkið okkar hérna á sama tíma. Nú er bara að jafna sig eftir
þvílíkt páskaát. Svona á milli máltíða kíktum við meðal annars á
Nordsjömuseum, sáum kafara gefa fiskunum, klöppuðum sjávardýrum og
skoðuðum þau í návigi.
Eftir
fiskasafnið skiptum við liði þar sem hluti af hópnum kíkti í
Tívolíið hér í Álaborg og hinn hlutinn skoðaði forminjar og nýfædd
lömb í nágrenninu. Ég fór með syni mínum í einn rússibanann og úff
það geri ég nú ekki aftur. Hef nú prófað nokkra rússibana og mæli
hreint ekki með þessum, þetta var bara vont. Tækið er greinilega úr
sérgengið miðað við það sem maður á að venjast í dag. Vorum alltof
laus í tækinu, sem hökti til og frá, þannig að ég átti í mestu
vandræðum með að halda höfðinu sæmilega uppréttu. Það
skemmtilegasta í garðinum var án efa speglasalurinn, skemmtum okkur
öll saman þar, ég hefði nú ekki haft neitt á móti því að fá einn
spegilinn með heim. Sonur minn hefði reyndar sennilega ekki valið
sama spegil og ég 
Ég fór
svo með prinsessuna í vigtum í gær. Hér getur maður farið í opin
tíma hjá hjúkkunni þar sem hún kíkir á krílin, viktar og mælir.
Daman er orðin 6.250 gr og 61 cm. Dafnar sem sagt alveg stórvel,
jæja hún er líka farin að kalla, bless í bili