Það passaði víst ekki lengur að vera með færslu um jól og
jólafrí, enda allt svoleiðis búið. Eiginmaðurinn er búin í
fyrsta prófinu og á fullu að læra fyrir það næsta. Ég á að
fara í vörn á verkefninu mínu þann 10. janúar, svo núna þarf
víst að undirbúa framlögn á einhverju sniðugu til að bæta við
verkefnið. Auk þess að reyna að undirbúa sig fyrir allar
mögulegar spurningar úr verkefninu. Er einhvern veginn hálf
hugmyndasnauð þessa dagana.
Það var
nú hálf skrýtið að vera bara litla fjölskyldan heima í gær, eftir
að hafa haft fullt af gestum síðan fyrir jól. Annars tókum við því
bara rólega fyrir utan nokkrar bæjarferðir, heimsókn til
ættingjanna í Vejle og svo var gripið i spil.
Ég held
að prinsinn hafi bara aldrei fengið jafn mikið af jólagjöfum og í
ár, það var alla vega alveg hellingur. Hér var algjört pakkaflóð
undir og við hliðina á jólatrénu. Takk kærlega fyrir okkur og takk
fyrir öll jólakortin. Við sitjum eftir með smá samviskubit, því
ekki náðum við að koma jólakortum út þessi jólin
komst víst ekki
inní skipurlagið í þetta sinn, það kom þá að því að það
klikkaði.
Við
fórum í sónar í gær og er krílið orðið um 11 merkur og er allt eins
og það á að vera, svo núna er bara að klára skólann í bili og þá má
þetta alveg fara að koma. Jæja jæja það er nú samt um mánuður eftir
sem er örugglega hægt að láta líða í undirbúningi.
Áramótaknús frá Álaborg