Fjölskyldan í Álaborg

Líf og fjör í Álaborg

22.11.2005 20:05:42 / Hanna

Þriðjudagur til þrautar!

Nóg að gera í dag, var mætt í barnaskóla hér í nágrenninu rétt fyrir klukkan 8 þar sem við vorum með síðasta hluta námskeiðsins okkar í Kollegial Supervision. Það var sem sagt frá klukkan 8-10, gekk líka svona glimrandi vel, fengum frábæra umsögn frá þátttakendunum.

Þá var komið að vinnudegi um starfsmannasamtöl (Medarbejderudviklingssamtaler) Hann stóð frá klukkan 10:15 til 15. Það var gaman að fá aðra sýn á þessi samtöl, eftir að hafa prófað að halda svoleiðis í vinnunni á Íslandi.

Loks var komið að krísufundi með leiðbeinandanum okkur. Hefði nú verið þægilegra að fá hann fyrir daginn, en það var víst ekki hægt að koma því inní skipurlagið fyrr. Ég var nefnilega fram á sunnudag í grúppu með 5 öðrum, á sunnudaginn fengum við stelpurnar (3) svo SMS frá strákunum sem sagði að þeim fyndist að markmið og þær leiðir sem við vildum fara í verkefninu væru of ólíkar svo þeir hefðu ákveðið að hætta í grúppunni. Skrýtin leið til að gera þetta á, sérstaklega þar sem ekki var búið að ræða neina óánægju eða að eitthvað væri ekki að virka fyrr. En jæja þetta var krufið á fundinum með leiðbeinandanum og niðurstaðan var að við höldum áfram í tvennu lagi, allt í besta lagi með það. Kemur sennilega þægilegra vinnulag út úr því, lærdómur dagsins var því, þó þú haldir að allt sé í lagi þá getur borgað sig að spyrja. Vona nú samt að þeir nýti sér hinn lærdóminn og tjái sig fyrr þegar eitthvað er ekki eins og það ætti að vera. Mér finnst nú fyndnast í þessu öllu saman að ég er í námi í mannlegum samskiptum ;)


» 78 hafa sagt sína skoðun

21.11.2005 12:05:32 / Óttar

Teningunum er kastað

Nú er það ákveðið. Ég er búin að velja hvernig ég ætla að láta tímann líða næstu tvö og hálft árið. Ég var að ákveða hvernig verkfræðingur ég ætla að verða þegar ég er orðinn stór. Ég valdi línu sem að kennd er við FACE, Fluids And Combustion Engineering.  http://www.face.aau.dk/ Þetta mætti útleggja sem orkuverkfræði á íslensku. Það sem er tekið fyrir í þessu er meðal annars varmafræði, kælitækni, túrbínur, dælur, flæði og fleira. Eitt af því sem að maður var mikið að velta fyrir sér áður en ákvörðuninn var tekin var hvort að þetta væri nokkuð of mikil sérhæfing. En eins og einn danskurinn sagði "Det bliver altid noget lort der skal pumpes."

» 68 hafa sagt sína skoðun

19.11.2005 09:58:54 / Hanna

Tölvuraunir!

Það er ótrúlegt hvað það reyndist mér erfitt að finna heppilega tölvu, það er sem hentaði mínum þörfum. Var búin að fá eina sem ég var bara nokkuð sátt við, sú reyndist svo vera biluð og var það síðasta eintakið sem til var af þessari týpu. Fékk aðra, í fyrstu tilraun gleymdist að senda með henni allt nema tölvuna sjálfa og batterí, var því ekki einu sinni hægt að kveikja á henni. Þetta var síðasta laugardag og búðin lokuð á sunnudaginn. Fengum fylgihlutina á mánudaginn, þá kom upp úr dúrnum að tölvan var læst svo ekki var hægt að komast almennilega inn í hana. Eftir skammir frá bróðir mínum, þá sá ég mér þann kost vænstan að skila gripnum, var svo sem orðinn þreytt á viðskiptunum við þessa búð líka. En þetta var víst bara DRASL sem ég var búin að kaupa, svo ég noti orð bróðir míns. Pantaði loks þessa fínu tölvu á þriðjudaginn, hún kom svo seinni partinn á fimmtudag, þá var konan nú orðin töluvert óþolinmóð, enda tefur það skriftir að vera tölvulaus :(

Við erum loksins að komast eitthvað í gang með samstarfaðilanum okkar í verkefninu, sem á að skila eftir 31 dag! Grúppan mín var ennþá í einhverjum loftköstulum, það er væri gaman að gera svona og svona..... Ég benti þeim því á í gær að við ættum að skila eftir 4 vikur þannig að við værum að falla á tíma! Konan ekki heldur alveg í ástandi til að vinna 20 tíma á sólarhring undir það síðasta. En jæja þetta bjargast vonandi allt saman. Þarf víst að halda áfram með minn texta svo hann sé alla vega klár til yfirlestrar í kvöld. Næsti grúppufundur er svo á morgunn.

Á þriðjudaginn var námskeiðs skipti númer 2 í námskeiðinu sem við erum að halda um Kollegial supervision. Þetta virkar þannig að í skólanum er búið að vera námskeið sem heitir Konsulentrollen í praksis (nokkurn veginn hvernig við vinnum sem ráðgjafar) fáum svo það verkefni að fara út af örkinni og æfa okkur. Þetta var alveg hrikalega skemmtilegt, styrkti mig í þeirri skoðun að þetta væri eitt af því sem ég væri til í að gera þegar ég verð stór, humm.

Jæja ég verð víst ekki neitt ef ég klára ekki verkefnið, best að snúa sér að skriftum!!!!!

Gleymdi ætlaði að deila með ykkur smá húsráði, þ.e. þeim ykkar sem ekki horfa á þættina um ruslið á Skjá einum, mér var nefnilega sagt að gott væri að þrífa örbylgjuofninn með því að setja sítrónusneiðar í vatn og hita í smá stund, svo er bara að þurrka af ofnin. Þetta svínvirkar og allt bara rennur af.


» 69 hafa sagt sína skoðun

12.11.2005 10:00:37 / Hanna

Bloggleti

Það er víst orðið langt síðan ég hef skrifað eitthvað hérna, hefur nú samt ýmislegt drifið á daga okkar. Við fengum heimsókn frá læknanemanum í Köben. Það var frábært að fá skátaskvísuna til okkar, varð víst smá truflun í skipurlaginu hennar svo heimsóknin var heldur styttri en til stóð. Tíminn var því nýttur vel, nóttinn fór í spjall í stað svefns. Verst þótti okkur að hafa ekki fattað að klukkan breyttist akkurat þá nótt, græddum heilan klukkutíma. Hann fór þó til lítils því skvísunni var skutlað klukkutíma of snemma á lestarstöðina, úbbs SORRY!

Fengum svo fjölskylduheimsókn frá Árósum, var víst orðið allt of langt síðan við hittum þau. Þurfum að passa að það líði ekki svo langt á milli, svo frændsystinin fái nú tíma saman. Kannski spurning hvaða áhrif prinsinn hér hefur í klifurlátunum sínum, litli frændi hans horfði stóreygður á aðfarirnar. Enda getur kappinn verið frekar stórtækur i klifuruppátækjum, sérstaklega þegar það eru spennandi tré eða leiktæki í nágrenninu, ja ef hann mætti ráða þá væri það nú reyndar hvað sem er.

Prinsinn fékk svo pabba sinn í heimsókn um síðustu helgi og fram á miðvikudag. Þeir feðgar brölluðu ýmislegt. Voru sendir í Jumbóland, með nokkur auka börn, þar var hoppað frá sér allt vit. Syninum og vinkonu hans tókst svo að plata pabban með á McDonalds, ekki alveg uppáhaldsstaður okkar hérna. Við hjónin nýttum loksins tækifærið og komum bridgeklubbnum af stað, stóð víst til síðan síðasta vor. Það fylgdi víst afmælisgjöfinni minni frá eiginmanninum að hella sér út í bridge lærdóm, til þess að það gengi þá þurfti að finna félaga til að spila við, það tókst nú alveg en hefur reynst þrautinni þyngri að finna tíma til að byrja. Þetta varð bara alveg stórskemmtilegt, þannig að næsta bridgekvöld var ákveðið med det samme ;) Á þriðjudaginn skelltum við okkur í bíltúr til Fredrikshavn, að sækja fartölvu sem þurfti að komast til Íslands. Ákváðum að búa til smá ferð í kringum þetta, röltum því um miðbæinn og fórum svo inná kósý veitingastað, áttum staðinn nánast útaf fyrir okkur, enda þriðjudagskvöld.

Restin af vikunni fór í veikindi hjá okkur hjónum, held við séum nú öll að koma til, enda eins gott að halda áfram með lærdóminn! Það er alltof stutt í verkefnaskil. Ég reyni svo að finna þessar misgáfulegu staðreyndir fljótlega :)

Ég fann víst loksins fartölvu handa mér um síðustu helgi, jibbí jei! Mín er líka helmingi léttari heldur en eiginmannsins, enda mismunandi þarfir hafðar að leiðarljósi.


» 84 hafa sagt sína skoðun

01.11.2005 17:54:43 / Óttar

Fimm ómerkilegar staðreyndir um mig:

1. Mér finnst ís ekkert sérstakur. Hann er of kaldur.

2. Það er ákaflega lítil meining í því að segja "góðan daginn" fyrir fyrsta kaffibolla. Ég er samt morgunhressari en margir sem ég þekki. Ég þori ekki að nefna nein nöfn.

3. Ég get borðað það sama marga daga í röð.

4. Eins og vinur minn hann Kalli er ég að eigin mati ýmislegt. T.d. jákvæður og nægjusamur að eðlisfari.

5. Öll keðjubréf og vírushótanir sem að flæða um netið stoppa hjá mér og fara ekki lengra.


» 72 hafa sagt sína skoðun