Fjölskyldan í Álaborg

Líf og fjör í Álaborg

07.03.2010 20:17:29 / Óttar

Kosningar

Það getur verið bölvað ónæði af þessum kosningum alltaf hreint. Þetta er einn af þessum ókostum við að búa í landi þar sem líðræði er stundað. Mikið á fólkið gott sem að er svo heppið að búa í einræðisríkjum. Þar er einhver sem að tekur allar þessar óþolandi ákvarðanir sem að þarf alltaf að taka afstöðu til.

Núna ætla ég að sleppa kaldhæðninni.
Að mínu mati er það lítilsvirðing við kosningarréttin að mæta ekki á kjörstað.
Að mæta á kjörstað og skila auðu er að sýna ákveðna afstöðu og þá atkvæðaseðla ætti að telja sérstaklega og ekki að flokka með ógildum seðlum.
Ef að fólki finnst í alvöru að það hafi verið óþarfi að kjósa, er það að segja það hefði ekki átt að senda lögin í athvæðagreiðslu og þess vegna átt að mæta á kjörstað, og merkja við JÁ.

Mér ber að kjósa. Það þarf ekki að finna einhverjar háfleigar ástæður fyrir því.
Að mæta ekki á kjörstað er ekki hægt að skilja sem svo að maður sé að lýsa áliti sínu á málefninu heldur er maður að lýsa áliti sínu á kosningum. Og því áliti er ég ósammála.

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.02.2010 09:54:39 / Óttar

Líffæragjafi

Ég var að fylla út form á netinu þess efnis að það mætti nota úr mér varahluti eftir minn dag. Þetta er dönsk síða en ég finn ekkert sambærilegt á íslandi. Kannski er það bara sjálfgefið.
Mér finnst allavega sjálfsagt að einhver annar fái að nota úr mér slátrið þegar ég er hættur að nota það.
Ég man að pabbi tók það oft fram að það mætti nota hans líkama í ransóknir eða endurvinslu ef að áhugi hefði verið fyrir því. Ég held að það hafi nú ekkert orðið af því enda var hann búin að nota öll sín líffæri vel og lengi. Hann fór líka vel með sín líffæri. Var t.d. ekkert að ofbjóða lungum og lifur með óhollustu.

» 7 hafa sagt sína skoðun

04.02.2010 08:57:29 / Óttar

Meiri snjór

Nú er búin að vera stanslaus snjór síðan mamma kom fyrir jól og það sér ekkert fyrir endan á því. Ég var búin að segja að þetta yrði svona fram á páska og dönsku veðurfræðingarnir eru sammála mér. Mér finnst þetta fínnt og skemmtilegt. Svona eiga vetur að vera. Samborgurum mínum hinnsvegar dönskum sem íslenskum finnst þetta vera frekar þreitandi. Það er samt svolítið erfitt að hjóla í snjó en ég hleypi bara úr dekkjunum eins og ég þori.

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.01.2010 10:44:46 / Óttar

Snjór

Í þann tíma sem að ég hef búið hér í Álaborg eða tæp sjö ár hefur aldrei komið svona mikill snjór og verið svona lengi. Þetta er eginlega fyrsti almennilegi veturin sem ég upplifi síðan ég flutti frá Íslandinu góða. Ég er mjög ánægður með þetta ástand. Mamma er ekki eins ánægð og notaði gærdaginn til að fussa og sveija yfir dönskum flugfélögum, ónýtum snjóruðningsmönnum, of fáum tækjum og vitlausum dönum sem að fara alveg í kerfi þegar þeir sjá hvítt.
Ég skemmti mér við að moka snjó, spóla á bílnum, hnoða og henda snjókúlum og leika við krakkana á snjóþotu.
Síðustu nótt hefur snjóað töluvert og núna er dágóður skafrenningur þannig að það er frekar einmannalegt í vinnuni. Það háir Dönunum nefnilega að vegna lítillar reynslu eru þeir lengi að riðja vegina og gera það þar að auki ílla. Sem dæmi þegar gatan okkar var rudd í gærkvöldi og svo aftur í morgun var mokað í hrúgu fyrir innkeirsluna hjá tveimur nágrönnum mínum sem komast svo hvorki lönd né strönd þessa stundina. Þegar ég fór í vinnuna í morgun setti ég skófluna í bílin sem öriggistæki ef svo ólíklega vildi til að ég væri sá klaufi að festa mig. Konan var svo að hringja í mig áðan til að skamma mig fyrir að taka skófluna því að hún ætlaði að gera snjóhús með krökkunum. Hún héllt því fram að ég væri svo egingjarn á að moka snjó að ég hefði tekið skófluna með mér svo að þau myndu ekki moka snjó meðan ég væri í vinnuni. En það er meira en nógur snjór fyrir alla.
Gleðilega snjókomu.

» 5 hafa sagt sína skoðun

03.12.2009 09:38:24 / Óttar

Opið bréf til Stjórnar DIFN

Kæra stjórn DIFN
Báðir þessir kostir eru spennandi en á þeim er samt töluverður munur. Ég hef eftir öðrum leiðum fengið meiri upplýsingar um báða þessa kosti og finnst að það séu ansi mörg mikilvæg atriði sem að þið sleppið að nefna.
 
Til þess að Árósamenn geti gert þetta svona veglegt hafa þeir fengið til samstarfs við sig Eimskip, Marel og Flugleiðir. Samkoman verður jafnframt árshátíð fyrir starfsmenn Eimskips og Marels og svo er verið að athuga með að flugleiðir auglýsi og selji miða frá Íslandi til að ná fleiri seldum miðum. Að auki var Íslendingafélaginu í Horsens boðið að koma líka en þau afþökkuðu. Eftir stendur að á mig virkar þetta frekar sem nokkurhundruð manna ball með Sálinni en þorrablót Íslendingafélagsins í Álaborg.
 
Í Árósum er staðsetningin vöruskemma á hafnarsvæðinu. Það er vissulega mögulegt að gera þannig húsnæði vistlegt en virkar samt frekar kuldalegt á mig.
Samkomuhúsið sem er búið að panta hér, er innanbæjar og passar vel fyrir þorrablót DIFN.
 
Í póstinum stendur að Árósamenn bjóði DIFN að taka þátt í þeirra þorrablóti. Þýðir það að DIFN beri líka fjárhagslegar skuldbindingar ef að æfintýrið gengur ekki upp?
Í póstinum stendur ekki hvað það mundi kosta DIFN að borga undir rútu til Árósa. Það er alveg örugglega ekki gefið á helgar/nætur taxta. Mín skoðun er sú að peningnum sé betur varið í að styrkja þorrablót DIFN sem að er innanfélagsviððurður og félagsmenn eru tilbúnir að leggja bæði tíma og vinnu í að undirbúa. Þannig eflir stjórn DIFN starfið í félaginu og virkjar fleiri félaga beint í störfum þess.
Í póstinum stendur; "en ljóst er að þorrablótið verður að standa undir sér". Já, en ekki hvað? Auðvitað á blótið að standa undir sér og það er hlutverk þorrablótsnefndar og stjórnar DIFN að gera fjárhagsáætlunina þannig úr garði að blótið standi undir sér. Átti þessi setning að hafa áhrif á það hvorn kostin ég sem almennur félagsmaður mundi velja? Og ef svo er, hvernig þá? Miðað við núverandi fjárhagsáætlun stendur blótið undir sér með 350 kr miðaverði og sama fjölda og kom í fyrra.
 
Tilboðið frá Árósum er ekki svo galið. Böll með Sálinni standa alltaf fyrir sínu og eru örugglega ekkert verri með fleirihundruð manns. En það kæmi ekki í staðin fyrir þorrablót í mínu félagi. Svo hef ég takmarkaðan áhuga á að sitja amk. þrjá tíma í rútu báðar leiðir og líklega lengur, því gera má ráð fyrir ælu og pissustoppum á heimleiðinni. Þá á eftir að taka með í reikninginn biðtíma við brottför og heimför þegar hinkrað er eftir fólki sem að ætlar með en er "aðeins of seint".
 
Mér finnst kosturinn við Árósatilboðið vera hljómsveitin, en ókostirnir löng rútuferð, staðsetningin og 100 kr dýrara miðaverð.
Þegar allt er tekið saman, óska ég þess að það verði haldið í þá vinnu sem að nú þegar er búið að leggja í undirbúning fyrir okkar eigið blót og stjórn DIFN og þorrablótsnefnd taki höndum saman um að gera blótið okkar eins glæsilegt og mögulegt er.

Gleðilega aðventu.

From: difn@difn.dk
To: difn@difn.dk
Subject: Áríðandi tilkynning frá DIFN
Date: Tue, 1 Dec 2009 15:01:47 +0100

Kæru félagsmenn!!!

Þann 6.Febrúar mun Íslendingafélagið í Aarhus halda þorrablót sitt og ætla að gera það stórt þetta árið, þar sem þeir hafa fengið Sálina hans Jóns míns til að mæta og spila fyrir liðið og einnig er verið að tala við þá félaga  Simma og Jóa um að taka að sér skemmtanastjórn.

 Íslendingafélagið í Aarhus hefur haft samband við stjórn DIFN og er okkur boðið að taka þátt í þessu blóti með þeim.  Miðinn mun kosta 450kr fyrir mat og ball og 300 kr. Inn á sjálft ballið.

Ef félagsmen taka vel í þetta og ef áhugi er fyrir því að fara frekar þangað, heldur en að halda eigið blót í Álaborginni þá mun DIFN bjóða upp á rútuferðir fram og tilbaka þar sem verður frítt í rútuna fyrir félagsmenn DIFN‘s.

Ef meiri áhugi er fyrir því að halda blótið hér í Álaborg, þá er frágengið að hljómsveitin Vinir vors og blóma muni koma og spila fyrir þorrablóts gesti.  Fyrirhugað er að miðinn muni kosta 350-400kr fyrir mat og ball, en ljóst er að þorrablótið verður að standa undir sér.

Stjórn DIFN vill mjög gjarnan heyra ykkar álit, um hvort það sé meira spennandi að fara á blótið niður í Aarhus eða haldað okkar eigið blót.  Það er hins vegar alveg ljóst að ekki er hægt að koma á móts við alla í þessu sambandi. 

Endilega segið álit ykkar sem fyrst, með því að senda okkur tölvupóst á netfangið ifn@difn.dk">difn@difn.dk

Kv. Stjórn DIFN


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.11.2009 13:01:44 / Óttar

Kórtónleikar

Í kvöld er kórinn minn með vetrartónleika. Við ætlum að syngja lög á dönsku, latínu, þýsku og ensku.

Ég er alveg að verða búinn að parketleggja. Á bara eitt herbergi eftir.

Ætli það sé ennþá einhver sem að skoðar þetta blogg?

» 5 hafa sagt sína skoðun

27.09.2009 19:34:19 / Óttar

Laufabrauð

Ég er ekki alinn upp við laufabrauð og ég lifi jólin alveg án þess. Ég fann það snemma á æfinni að ég skar mig út úr í þessum efnum í barnaskóla. (Uppalinn á Akureyri, sko) Foreldrar mínir höfðu ekki alist upp við laufabrauð og sem aðkomufólk á Akureyri (höfðu bara búið þar í næstum 40 ár) festi laufabrauðshefðin ekki rætur í okkar fjölskyldu. Ég tók eftir þessu þannig að það gat verið erfitt að skipuleggja eitthvað í skátunum mánuðinn fyrir jól vegna þess að það var alltaf einhver sem að var að fara að skera og steikja laufabrauð með fjölskyldunni. Fyrir mér leit það merkilega út að laufabrauðsskurðurinn væri svo heilagur að allt annað varð að víkja þegar hann var kominn á dagatalið. Ég held að það næsta sem að ég komst í að upplifa svona lagað, var fyrr á haustin þegar slátrið var tekið og fjölskyldan safnaðist heima til að sauma vambir, brytja mör og sulla í blóði.

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.09.2009 07:00:30 / Óttar

Morgunblaðið

Nú ætla ég að gera tilraun. Ég ætla að prófa að hætta að lesa mbl og sjá hvað ég held það lengi út. Hefði reyndar átt að vera hættur fyrir löngu miðað við hvað mér finnst um fréttafluttninginn þar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.09.2009 20:01:27 / Óttar

Æfing

Áðan var ég á æfingu. Þar var stjórnandi sem að talaði norsku og ensku með ítölskum innskotum, við sungum á þýsku, töluðum dönsku í pásuni og ég hugsaði á íslensku hvað þetta væri nú gaman.

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.09.2009 20:22:13 / Óttar

Kór

Ég er búinn að taka inntökupróf og fá inngöngu í kór hérna í Álaborg. Þess vegna þurfti ég að fara í bæinn í dag og kaupa svört jakkaföt. Það var einfalt. Við konan fórum í bæinn og fyrsta búðin sem að við sáum var með jakkaföt á tilboði.
Kórinn er að æfa Lobgesang eftir Mendelssohn og svo verða tónleikar með sinfóníuhljómsveit Álaborgar og svaka læti í næstu viku.

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.08.2009 09:13:11 / Óttar

Elskan

Vitið þið afhverju danskir menn kalla konuna sína "skat"?

Það er af því að hún tekur til sín stærsta hlutan af kaupinu þeirra.

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.05.2009 06:28:42 / Óttar

Barnabílstóll

Getur einhver lánað okkur bílstól fyrir 9 - 10 kílóa barn frá uppstigningardegi og yfir helgina þar á eftir?

» 8 hafa sagt sína skoðun

11.05.2009 19:12:44 / Óttar

Meiri ferðalög

Á uppstigningardag ætla ég, konan mín og minni strákurinn okkar að fara til Íslands. Við verðum fram á mánudaginn þar á eftir. Á meðan ætlar tengdó að vera hér og passa englana okkar sem að eftir verða.

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.04.2009 08:36:43 / Óttar

Á laugardaginn

kem ég með dóttur minni til íslands. Við erum ekki búin að kaupa miða til baka en ég reikna með stuttu stoppi.
Sjáumst.

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14